Skapast hefur hefð fyrir því að halda málþing í Veganúar um hin ýmsu málefni tengd veganisma. Að þessu sinni verður fjallað um stöðu grænmetisræktar á Íslandi með tilliti til sjálfbærni og nýsköpunar. Málefnið varðar ekki einungis hagsmuni grænkera, heldur samfélagsins í heild. Grænmeti er hollt fyrir fólk og mikilvægt er að efla grænmetisrækt á landinu.
Embætti Landlæknis hefur hvatt til þess að fólk í landinu borði meira grænmeti og allar helstu alþjóðastofnanir á sviði heilsu og næringar mæla með aukinni neyslu ávaxta og grænmetis til að sporna við lífstílssjúkdómum. Með tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga Íslendinga í loftslagsmálum, matvælaöryggis og heilsufars fólks í landinu þá ættum við sannarlega að vera að spá í þessum málum. Ef við viljum stuðla að sjálfbæru samfélagi, þá viljum við auðvitað geta fengið sem flest matvæli úr nærumhverfinu.
Þótt margt sé nú þegar vel gert þá getum við á Íslandi gert margt betur þegar kemur að grænmetisrækt. Ein af dýrmætustu auðlindum okkar er jarðvarminn og hann mætti mögulega nota meira til grænmetisræktar meira en þegar er gert. Þá er mikilvægt að skoða hvort ekki sé hægt að leyfa grænmetisræktendum að njóta sambærilegra afsláttarkjara af rafmagni og stóriðjan fær.
Á Íslandi er einna helst stutt við framleiðslu þrennskonar grænmetis á Íslandi; papriku, gúrku og tómatarækt. Ef það væri eina grænmetið sem ég borðaði þá er nokkuð ljóst að máltíðirnar mínar væru langt frá því að vera girnilegar og hvað þá næringarríkar. Það eru sannarlega til fleiri hollar tegundir grænmetis sem auðvelt er að rækta hér á landi. Er ekki kominn tími til þess að taka loksins skrefið og stuðla að almennt aukinni grænmetisrækt á Íslandi? Í miklu meira magni og óháð tegundum?
Eftirspurn grænkerafæðis hefur aukist gífurlega ef marka má breytingar á vöruúrvali í matvörubúðum á Íslandi síðastliðin ár. Nýsköpun á sviðinu hefur verið töluverð erlendis. Á þessu sviði eru fólgin mikil tækifæri í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, sem íslenskir matvælaframleiðendur eru margir hverjir farnir að átta sig á – og vonandi fjölgar þeim enn meir.
Til þess að öðlast góða yfirsýn á málaflokkinn efna Samtök grænkera á Íslandi og Landvernd til málþings sem fer fram á Hallveigarstöðum á morgun, fimmtudag kl. 20:00. Höfum við fengið ýmsa sérfræðinga með okkur í þeim tilgangi að öðlast góða yfirsýn á málaflokkinn og hvað mætti betur fara.
Á málþinginu fá gestir að heyra reynslusögur grænmetisbænda, sýn ráðuneyta, Landverndar og Samtaka grænkera á málaflokkinn ásamt stefnu ólíkra stjórnmálaflokka. Ég hvet áhugasama til að mæta. Vonandi verður málþingið til þess að skapa meiri umræðu um þessi mál í samfélaginu.
Höfundur er félagsfræðingur og meðstjórnandi í Samtökum grænkera.